Sagan sögð áfram

Hvað er Tímaspor?

Tímaspor er safn frásagna fyrir börn með Íslandssögu í forgrunni. Sagan er flutt af munni fram,
á sama hátt og áður fyrr þegar sagan gekk á milli kynslóða í stofunni heima.


Hér er sagan ekki kennd eins og í kennslubók. Hún er sögð. Með hlýju, forvitni og rými fyrir ímyndunaraflið.

Markmiðið er að vekja áhuga, spurningar og tengingu: Að gefa börnum tilfinningu fyrir tíma, samhengi og því hvernig fortíðin lifir áfram í samtímanum.

Sögurnar henta börnum á mismunandi aldri, sem og fullorðnum,
og eru hugsaðar til hlustunar og samveru
- heima, í bílnum, eða fyrir svefninn.

Hvernig varð Tímaspor til?

Tímaspor er ástríðuverkefni sem varð til í miðri sögustund við arineld, þar sem afi Palli sat og sagði Agli Páli sögur af nafna hans, Agli Skallagrímssyni.

Afi Palli segir Agli Páli sögu við arineldinn

Afi Palli og Egill Páll í sögustund

Afi Palli er nefnilega ekki bara afi. Hann er sögukennari og einstakur frásögumaður sem hefur í gegnum árin sagt börnum sínum og barnabörnum frá fólki, stöðum og atburðum úr íslenskri sögu.

Egill Páll, sekkur inn í heimana sem afi hans dregur upp - frá landnámi víkinga til atburða Sturlungaaldar, kristnitöku, sögu Þingvalla og stofnun lýðveldisins.

Þeir geta setið saman svo klukkustundum skiptir og Egill Páll kemur heim óðamála af áhuga um Íslandssögu og ævintýri forfeðra sinna. Stundum er farið út fyrir landsteinana, sagðar sögur af Rómarveldi, lífinu á miðöldum í Evrópu og nýja heiminum í vestri.

Þarna við arineldinn fylgdist Vinga með félögunum og leiddi hugann að því hvað það væri dýrmætt ef fleiri börn gætu notið þessara stunda - lært um sögu Íslands hjá afa Palla, í þeim skýra, skemmtilega og hlýja búningi sem hann hefur sett hana í fyrir Egil Pál.

Og Tímaspor varð til.

Egill Páll, Vinga, Óskar Emil og afi Palli

Með von um að þið njótið ferðalagsins,

-Egill Páll, Vinga, Óskar Emil og afi Palli