Your Privacy Choices

As described in our Privacy Policy, we collect personal information from your interactions with us and our website, including through cookies and similar technologies. We may also share this personal information with third parties, including advertising partners. We do this in order to show you ads on other websites that are more relevant to your interests and for other reasons outlined in our privacy policy.

Sharing of personal information for targeted advertising based on your interaction on different websites may be considered "sales", "sharing", or "targeted advertising" under certain U.S. state privacy laws. Depending on where you live, you may have the right to opt out of these activities. If you would like to exercise this opt-out right, please follow the instructions below.

If you visit our website with the Global Privacy Control opt-out preference signal enabled, depending on where you are, we will treat this as a request to opt-out of activity that may be considered a “sale” or “sharing” of personal information or other uses that may be considered targeted advertising for the device and browser you used to visit our website.

Sagan sögð áfram

Hvað er Tímaspor?

Tímaspor er safn frásagna fyrir börn með Íslandssögu í forgrunni. Sagan er flutt af munni fram,
á sama hátt og áður fyrr þegar sagan gekk á milli kynslóða í stofunni heima.


Hér er sagan ekki kennd eins og í kennslubók. Hún er sögð. Með hlýju, forvitni og rými fyrir ímyndunaraflið.

Markmiðið er að vekja áhuga, spurningar og tengingu: Að gefa börnum tilfinningu fyrir tíma, samhengi og því hvernig fortíðin lifir áfram í samtímanum.

Sögurnar henta börnum á mismunandi aldri og eru hugsaðar til hlustunar og samveru
- heima, í bílnum, eða fyrir svefninn.

Hvernig varð Tímaspor til?

Tímaspor er ástríðuverkefni sem varð til í miðri sögustund við arineld, þar sem pabbi minn sat og sagði eldri syni mínum sögur af nafna hans, Agli Skallagrímssyni.

Afi Palli er nefnilega ekki bara afi. Hann er sögukennari og einstakur frásögumaður sem hefur í gegnum árin sagt börnum sínum og barnabörnum frá fólki, stöðum og atburðum úr íslenskri sögu.

Sonur minn, Egill Páll, sekkur inn í heimana sem afi hans dregur upp - frá landnámi víkinga til atburða Sturlungaaldar, kristnitöku, sögu Þingvalla og stofnun lýðveldisins.

Þeir geta setið saman svo klukkustundum skiptir og sonur minn kemur heim óðamála af áhuga um Íslandssögu og ævintýri forfeðra sinna. Stundum er farið út fyrir landsteinana, sagðar sögur af Rómarveldi, lífinu á miðöldum í Evrópu og nýja heiminum í vestri.

Þarna við arineldinn fylgdist ég með þeim og leiddi hugann að því hvað það væri dýrmætt ef fleiri börn gætu notið þessara stunda -  lært um sögu Íslands hjá afa Palla, í þeim skýra, skemmtilega og hlýja búningi sem hann hefur sett hana í fyrir Egil Pál.

Og Tímaspor varð til.